|
|
08.10.2008 09:51:15 / sibba_e
Halló... jæja þar sem að ég er í fríi í dag þá ákvað ég að blogga smá. Það er allt ágætt að frétta hjá mér, reyndar lítið nýtt frá því síðast! Ég kíkti á fyrsta djammið mitt þar síðustu helgi með henni Nínu og það var rosalegt stuð Þurfti reyndar að passa til 11 eða einhvað og brunaði svo með taxa inn í Bergen (sem er btw rosalega dýrt ) og hitti Nínu á stað sem heitir Teknikerkroen. Nína þurfti svo að fara um 1 en ég var alls ekki tilbúin að fara heim því, enda ný komin, þannig að ég varð bara ein eftir og fór að spjalla við norsarana var þessi skemmtilega gella sem settist hjá ókunnugu fólki og byrjaði að spjalla.. og svo á milli tróð ég mér inn í einhverja hópa að dansa hehe svo endaði ég á röltinu með einhverjum norsurum og fór svo heim um 5, gott kvöld þarna á ferð og ég bíð spennt eftir því næsta sem verður kannski á núna á laugardaginn Annars hef ég nú ekkert mikið að segja frá... dagarnir líða mis hratt, stundum leiðist mér rosa mikið en stundum ekkert. Hugsa soldið mikið heim... en maður verður bara að reyna að gleyma því í bili! Það fer síðan alveg að koma á hreint hvenær ég kem heim, það er allavega alveg í byrjun desember en veit ekki nákvæma dagsetningu, skýrist held ég í þessari viku. Ég er allavega spennt að vita. Vonandi að allt verði komið í lag í þessum efnahagsmálum heima þá, það er ekki talað um annað, ég fylgist með öllu á mbl.is sko svo var Geir H. Haarde líka í norska sjónvarpinu þegar ég var í ræktinni á mánudag... náði reyndar ekki að hlusta hvað hann var að segja afþví að ég var að hlaupa svo mikið en eins gott að ég byrji að spara launin mín sem ég fær hérna svo ég geti komið með þau heim og skipt, þá græði ég frekar mikið útaf norska krónan er svo há Ég kíkti svo aðeins út í gær, loksins, ég fór með Nínu inn í Bergen á kaffihús. Var reyndar með einhvern svakalegan verk í eyranu og heyrði ekki hálfa heyrn, ætlaði aldrei að sofna mér var svo illt vaknaði svo með hellu í dag og heyri bara suð og bergmál þegar það er talað. Þarf örugglega að fara til læknis og láta tékka á þessu, nenni samt ekkert að fara til læknis hérna og þurfa að tala ensku eða bjagaða norsku!! Þið vorkennið mér örugglega rooosa mikið hehe Enn nenni þessu ekki meira, kannski að maður fari að koma sér á lappir og gera eitthvað, eða bara liggja upp í rúmi og horfa á dvd? Hmm spurning... bæjó:*
»
22.09.2008 21:26:39 / sibba_e
Já góðan daginn... núna er soldið langt síðan ég bloggaði síðast þannig ég man ekkert hvað er búið að gerast. Held að það sé allavega komið alveg á hreint að ég er algjör sauður!! Mér tókst nefninlega að týna bílnum í síðustu bæjarferð sem ég fór í. Fór semsagt einn frídaginn minn í verslunarleiðangur inn í borgina, Bergen, og lagði bílnum okkar í huges bílastæðahús þar sem ég þurfti að keyra svona göng niður til að leggja bílnum og svo tók ég lyftu upp og kom út einhversstaðar á allt öðrum stað, ooog guess what?? Eftir að hafa verslað í smá tíma og þegar ég ákvað loks að halda heim þá bara mundi ég aaalls ekki hvar ég hafði komið út úr þessu lyftuhúsi. Þannig að ég eyddi svona 2-3 tímum í að ráfa um götur Bergen borgar í leit að þessu blessaða bílastæðahúsi, var næstum því farin að gráta... var aalein og engin mamma til að bjarga mér Bergen er heldur ekkert lítil borg! en þetta reddaðist þannig að það kom einn íslenskur vinur hans Gylfa sem spilar með honum í Brann og skutlaði mér að bílnum.. hann vissi nákvæmlega hvað ég var að meina þegar ég lísti aðkomunni að þessu bílastæðahúsi, think god! (btw þá var ég búin að labba framhjá innganginum í lyftuhúsið svona hundrað og einu sinni en fattaði ekki neitt) Þið hefðuð ekki viljað lenda í þessu, believe me Þessa sömu helgi fékk ég rosalega mikla heimþrá í fyrsta skipti síðan ég kom út og allt var einhvernveginn ómögulegt, hlaut svosem að koma að því. Helga sagði þá að það væri minnsta mál ef ég vildi skreppa heim yfir eina helgi þannig að eg hringdi í mömmu og hún sansaði flug fyrir mig, pabbi var svo yndislegur að borga fyrir litlu stelpuna sína.. alls ekki ódýrt að fljúga skal ég segja ykkur Vikuna áður en ég fór heim þá komu Arnar og Pattra í heimsókn. Arnar er pabbi krakkana og Pattra er kærastan hans.. ég var voða elskuleg og lánaði þeim herbregið mitt á meðan þau voru hér og á meðan gisti ég á dýnu inni hjá Alex og Ísabellu. Pattra eldaði rosa góðan thilenskan mat handa okkur því að hún er jú frá Thilandi það var veldig bra.... (uppáhalds setningin mín núna)  Ég átti svo afmæli á miðvikudaginn í seinustu viku og varð 18 ára eyddi afmælisdeginum mínum hérna í Norge, sá fyrsti sem að ég er ekki heima.. en hann var góður, Helga bakaði afmælisköku handa mér og alles Skellti mér svo bara í bíó með Nínu um kvöldið á mynd sem heitir Towelhead og er algjört bull en samt sem áður mjög fyndin Daginn eftir fór ég svo heim á góða Ísland... Ingibjörg mín yndislega sótti mig upp á flugvöll.. ji minn eini hvað það var gaman að sjá hana, fór næstum að gráta.. samt voru bara liðnar 5 vikur síðan ég sá hana, greinlega of langur tími hehe en já svo fórum við á skagann og ég fór á Hagaflötina og knúsaði Dabba minn og Bubbu, það var æði Heiðar var að veiða eins og vanalega.. hann er ekki alveg í lagi þessi bróðir minn. En hvað um það svo loksins fór ég heim og knúsaði mömmu og pabba sem ég hafði saknað mest og Elínu og Fannar auðvitað. Á föstudagskvöldinu hélt ég svo matarboð handa Sveitapíunum mínum... eldaði rosalega góðan pasta kjúklingarétt handa þeim sem ég held að hafi alveg slegið í gegn ég er meistarakokkur (mamma tók samt yfirhöndinni yfir eldamennskunni eins og hún er vön) en það þarf ekkert að fylgja sögunni. Við skelltum okkur svo á skagann og tjúttuðum fram á nótt... þetta var æðislegt kvöld sem við áttum þarna me and my girlís Um morguninn vaknaði ég svo kl 9 og fór að smala hjá Halla frænda. Ekki alveg það besta í þynnkunni en maður labbaði það nú bara af sér eins og sannur sveitamaður, góður dagur þrátt fyrir að ég var rosalega þreytt, var svo aldeilis búin að plana að djamma en það endaði með því að ég sofnaði kl 11 eða 12 um kvöldið. Fór svo til Sunnu sætu á sunnudeginum í afmæliskaffi, hún varð 19 ára skvísan... fengum rosa góðar kökur sem ég hefði alveg mátt borða minna af. Svo kom ég aftur hingað út á þriðjudaginn eftir roooslega góða ferð til Íslands og hér er ég bara komin í sömu rútínuna... mér er farið að þykja svo vænt um þessa gríslinga hérna, og þá meina ég auðvitað alla fjóra gríslíngana.. þau eru svo mikil æði, og Helga og Gylfi líka auðvitað á morgun á ég frí þannig að ég ætla að sofa og kannski fara í Lagunen og svona eitthvað að chilla bara og svo á föstudaginn næsta þá er ég að fara að kíkja á djammið í Bergen takk fyrir! Finally Nína ætlar að taka mig með á einhvern stað sem heitir Teknikerkroen og er fyrir svona stúdenta... vonandi að það verði gaman. Anyway fannst bara kominn tími á eitt lítið blogg.. finnst eins og ég sé að gleyma að segja eitthvað rosalega merkilegt hérna! Æji það kemur þá bara í næsta bloggi. Har det bra:*
  
»
28.08.2008 21:29:20 / sibba_e
Hæhæ. Tíminn er búinn að líða frekar hratt hérna hjá mér... dagarnir fljúga áfram, sem er bara gott mál. Þó svo að ég sé flesta daga bara heima að hjálpa til, þá eru dagarnir mjög fljótir að líða því ég er oftast að gera eitthvað.. eins og til dæmis snúast í kringum litlu dúllurnar sem láta hafa alveg nóg fyrir sér! Í dag er ég búin að vera í 22 daga í Norge og mér finnst það frekar mikið.. kannski afþví að ég hef aldrei verið svona lengi að heiman ein! Ég er stolt af sjálfri mér engin heimþrá hefur látið kræla á sér ennþá, eða allavega engin alvarleg, auðvitað koma stundir sem að ég myndi alveg vilja vera heima með familyunni og vinum, en svo hugsa ég bara að ég get gert það þegar ég kem heim... held að ég ætti frekar að nýta tímann hérna í eitthvað annað heldur en að hugsa um Ísland... sammála? Ég sakna ykkar samt rosa rosa mikið, sérstaklega mömmu og pabba! Mér finnst rosalega skrýtið að ég sé ekki byrjuð í skólanum eins og ég er vön... finnst stundum eins og ég sé að missa af einhverju svakalegu, en málið er að ég held að ég sé alls ekki að missa af svo miklu.. held að það sé enginn heimsendir að missa eina önn úr skóla.. er það nokkuð? Allavega.. í seinustu viku skellti ég mér í klippingu.. lét klippa síða hárið mitt stutt, eða það er vel styttra allavega og litaði það dökkbrúnt.. ætlaði ekki að týma að klippa það en það var alveg löngu kominn tími á það svo að ég sló til. Það eru hárgreiðslustofur út um allt hér svo að það er ekki vandamál að komast í klippingu hér.. kostar samt svoo mikið hérna, eins og allt annað, mjög dýrt að búa í Noregi... Á laugardaginn var ég í fríi, ég fór og hitti íslenska stelpu sem býr hérna í Bergen, bara á öðrum stað.. er samt bara um það bil 15 mín að keyra til hennar. Hún heitir Nína og er jafngömul mér, rosalega nice stelpa. Ég sótti hana og við fórum í miðbæinn, vorum bara að rölta um og hún sýndi mér ýmislegt, hvar bíóin eru, kaffihús, moll og fleira góður dagur þarna á ferð. Hún ætlar síðan bráðum að taka mig með sér á djammið, ég bíð spennt svo sagði hún mér endilega að hringja ef ég vildi gera eitthvað... hún á örugglega ekki eftir að fá frið frá mér greyið stelpan því að hún er svona eina sem ég þekki hérna á mínum aldri og mig er virkilega farið að vanta félagsskap. Það er eini svona gallinn, að það er ekki mikið af stelpum á mínum aldri hérna í kring... en maður lætur sig nú hafa það. En þessi laugardagur var reyndar ekki góður í alla staði þar sem að mér, snillanum, tókst að rispa og beygla bílinn okkar/þeirra aðeins.. ómæómæ ekki spyrja hvernig það gerðist. Fékk auðvitað smá sjokk.. ég nýbúin að sækja stelpu sem að ég hafði aldrei hitt áður og fyrsta sem ég geri er að keyra upp á einhvern kant og festa mig þversum á einhverjum svaka mjóum vegi, í brekku í þokkabót! Tók mig heillangan tíma að bakka út (og semsagt rispa bíllinn aaaðeins meira á meðan) Frábært að lenda í þessu... sérstaklega eftir svona stuttan tíma... eða þannig! Helga og Gylfi sögðu mér samt að hafa engar áhyggjur af þessu, tóku þessu sallarólega, það var léttir.. þau eru alveg æði. Þessa vikuna er ég búin að vera að „vinna“ alla dagana afþví að Gylfi fór í keppnisferðalag í þrjá daga þannig að ég og Helga vorum bara einar með grísina. Á morgun og laugardaginn fæ ég frí skelli mér örugglega í bæinn og finn mér eitthvað skemmtó að gera... verð að komast úúút! Enn jæjajæja ég n enni ekki að skrifa meira, ætla að fara að horfa á Grey‘s.. hmm kemur á óvart Bless í bili.
»
16.08.2008 20:42:53 / sibba_e
Jæja ákvað bara að starta þessari gömlu síðu aftur svo að ég geti bloggað af og til og kannski sett inn myndir, og þið fylgst með sem hafið áhuga Allavega þá er ég búin að vera í Noregi, nánar tiltekið í Bergen, í rúma viku og þetta er búinn að vera alveg frábær tími hingað til.. þetta byrjar vel, ég hef góða tilfinningu fyrir þessu. Helga og Gylfi, þau sem ég er hjá, eru alveg æðisleg við mig. Ég er að hjálpa þeim til við heimilisstörfin og hjálpa þeim að sjá um börnin þeirra, Köru og Einar, sem eru að verða 9 mánaða (og láta hafa soldið fyrir sér ), og Ísabellu og Alex sem eru 6 og 8 ára... yndisleg börn Þessa fyrstu viku er ég mest bara búin að vera heima að hjálpa til og komast inn í allt.. þetta er svolítil breyting að fara allt í einu frá fjölskyldunni sinni og yfir í annað land, inn á annað heimili þar sem þú þekkir engann.. en það er bara spennandi, ætla að njóta þess að vera hér þar sem að þetta er ekki svo langur tími, verð komin heim aftur í byrjun des. Þau eru líka svo yndisleg öll og taka svo vel á móti mér þannig þetta er ekki vandamálið. Húsið þeirra er á tveimur hæðum en þau hafa bara efri fyrir sig og leigja neðri út fyrir einhverja konu. Herbergið mitt er samt niðri þar sem er svona þvottahús og geymsla.. mjög kósý og gott að vera aðeins út af fyrir sig. Er með stórt rúm og risa flatsjónvarp þar sem ég get horft á Grey‘s Anatomy, sem ég er orðin alveg húkt á Ég "vinn" 5 daga í viku og er í fríi hina tvo, misjafnt hvaða dagar það eru, fer eftir leikjum og svoleiðis hjá Gylfa. Þau eiga tvo bíla og ég get fengið annað þeirra þegar ég þarf að skreppa eitthvað, mjög nice hinn bíllinn þeirra er breskur eða semsagt með stýrið öfugu megin.. ég fékk að prufa að keyra hann um daginn og það er frekar erfitt og asnalegt afþví ég er auðvitað ekki vön því þannig ég held að ég haldi mig bara við þennan venjulega. Ég er nokkrum sinnum búin að kíkja í Lagunen sem er moll í sirka 8 mín fjarlægð frá húsinu okkar, og auðvitað keyrir stelpan.. það er að segja þegar ég fer ein, ekki vandamálið.. reyndar svindla aðeins því ég er með svona GPS tæki í bílnum með svona kalli sem segir „after 200 meters turn to left“ „cross the roundabout and turn to right, first exit, first exit“... hehe hann er mjög fyndinn! Klárlega vinur minn Hann kom líka að góðum notum í dag þegar ég skrapp í Loddefjord sem er í sirka hálftíma í burtu, fór í sundlaugagarð og hafði gaman.. alein í góða veðrinu.. það var ágætt kíkti svo bara aaaðeins í eitt moll, það var nú einu sinni á móti þannig ég gat ekki sleppt því.. náði að versla smá Svo er ég aðeins að byrja í ræktinni, það er rosalega flott líkamsræktarstöð hérna svona 2 mín frá húsinu okkar.. þetta er svona ein af þekktustu keðjunum hérna í Noregi, svipað eins og WorldClass heima bara.. hægt að fara í alskonar aerobic tíma og svoleiðis og sund og allar græjur.. mjög svo frábært Fór reyndar í einhvern tíma á miðvikudaginn með alskonar hoppum og hnébeygjum og dóti og ég hélt ég myndi deyja næstu tvo daga á eftir úr harðsperrum!! kveið fyrir að fara á klósettið því það var svo erfitt að setjast hehe en þetta er nú að lagast ætla samt sem áður að fara aftur í þennan tíma, hann er meget skemmtilegur. Allavega þá er ég aðeins búin að láta heyra í mér... ætla að skríða undir sæng og horfa á Grey‘s og fara svo að lúlla.. ekki alveg eins og venjuleg laugardagskvöld hjá mér en ég er að fíla þetta kósý líf Hafið það gott heima á Íslandinu því að ég hef það súper gott hér í Noregi

Þessi sætu börn er ég að sjá um
»
17.02.2008 15:07:45 / sibba_e
Já sæl ég er mætt aftur í bloggbransann eftir smá pásu.. nú mun ég vonandi vera aðeins virkari í þessu annars eru allir komnir yfir á myspace, það er miklu skemmtilegra líka! Margt og mikið gerst síðan síðast og ég man ekki helminginn af því. Lífið er bara sama rútínan, skóli, ræktin, sofa, borða og ekki má gleyma þvi sem eg geri mest og það er að knúsa Davíð Loga... ooh ég á svo sætasta frænda í heiminum. Heyrðu ja svo má heldur ekki gleyma því að ég er með í skólaleikritinu.. er svona aðstoðar, að farða og greiða hár og svoleiðis.. þó svo að ég nu ekkert ægilega lagin við það er svo líka svona 30 sek í einu atriði.. hehe mjög gaman að taka þátt í þessu Ég er svo mjög sennilega að fara til Costa Del Sol um páskana með pabba mínum og Erlu. Erum búin að panta ferð 14 – 26 mars... þá er bara að vona að allt gangi að óskum í fjölskyldunni minni. Mig vantar vinnu! Ætla strax að byrja að leita mér að vinnu eftir páskafríið svo maður fái nú einhvern penging til að spreða Það er samt svo erfitt að fá vinnu hérna á skaganum finnst mér... ekki hvað sem er í boði. Jæja ætla að fara að fá mér einhvað rosalega gott að borða svona til að bæta heilsuna aðeins
»
09.01.2008 11:53:30 / sibba_e
»
20.11.2007 19:15:12 / sibba_e
Jæja þar sem að ég er latasta manneskja á jarðríki við að læra heima þá ætla ég að blogga Það er búið að vera svo mikið að læra fyrir þessa vikuna... og mér finnst það ekki gaman! Það dembist allt á mann svona á síðustu vikunum fyrir jólafrí, próf og alls kyns rugl! Eða kannski er ég bara aumingi að þola ekki smá heimanám, gæti verið það líka Var í frönskuprófi í dag sem mér gekk ágætlega í. Og munnlegu enskuprófi sem ég var svooo stressuð fyrir afþví að þetta er hjá henni Ludmilu enn jæja það gekk bara alveg ágætlega held ég miðað við það sem ég var búin að búast við Mikill léttir þegar því prófi var lokið skal ég segja ykkur. Þá er það bara munnlegt próf í dönsku og frönsku eftir... og íslensku próf á þriðjudaginn úr Egils sögu sem ég er ekki einu sinni búin að lesa Jájá ég er letingi! Nóg að gera sko.... Ég get sko ekki beðið eftir að komast í jólafrí Ætla að reyna að fá vinnu í jólafríinu og kannski aðeins fram í febrúar... Er nefninlega ekki að fara í skóla eftir áramót þar sem að ég er að fara sem skiptinemi til Þýskalands í 5 mánuði! Jebbss ég er búin að fá staðfestingu á því, fékk þetta staðfest á föstudaginn seinasta... en það eru samt ekki komnar neinar meiri upplýsingar eins og um fjölskyldu og þannig, getur þess vegna komið bara rétt fyrir brottför en ég bíð bara spennt á meðan ég fer semsagt 15 febrúar-12 júlí (afmælisdaginn hennar Ingibjargar) Hún er búin að lofa að halda partý á þessum degi þar sem að þetta er nú laugardagur... eins gott að hún standi við það kjellan hehe kannski aðeins of snemmt að fara að spá í það. Um helgina var ég voðalega stillt stelpa... fór ekki einu sinni á opnunarpartýið á Breiðinni.. var mjög ánægð daginn eftir að vakna hress og kát hehe kannski annað en sumir sem voru að skemmta sér En kannski djammar maður aðeins næstu helgi svona áður en maður byrjar að læraoglæraoglæra fyrir jólaprófin... Það er nefninlega bæði jólaball FVA og svo Á Móti Sól ball á breiðinni... spurning samt hvort maður skelli sér á bæði eða bara annað hvort! Veit að ég er nú reyndar ekkert með aldur til að fara á breiðina en kannski maður gerist smá svindlari eins og svo oft áður obbosíí... Enn jæja ég er farin að læra!... Hvað er skemmtilegra en það? Megið alveg kvitta fyrir komu ykkar, I Don´t Bite. Ekki mikið allavega Bæj krúsís.
»
03.11.2007 22:34:58 / sibba_e
Mig er farið að hlakka til jólanna.... Sjíí samt ætla ég ekki að byrja að hlusta á jólalög eða neitt fyrr en í fyrsta lagi einhverntímann seint í nóvember, annars verð ég komin með leið á því þegar jólin loksins koma Í gær var skammhlaupið.. Ég keppti í bókasafni og svo vorum ég og Thelma saman í borðskreytingu... fékk 8 fyrir bæði Mitt lið, gráa liðið drullutapaði samt! Síðan var ball á breiðinni um kvöldið með Ný Dönsk sem var alls ekki að gera sig. Spilaði ömurleg lög, en þá fór maður bara upp þar sem var DJ og skemmti sér þar þrátt fyrir mikinn hita og svita, prumpu, og táfýlu... Ojjbara! En annars alveg hið ágætasta ball þarna á ferð. Núna erum ég og Erla bara rosa rólegar hérna einar heima hjá mér að horfa á video. Rok og rigning úti og hvað er þá annað betra að gera en að liggja bara í leti og éta nammi?? Mætti samt alveg sleppa namminu! Bara 4 vikur eftir af skólanum og síðan próf, og svo loks jólafrí... Pælið í því! Þessi önn er búin að líða hraðar en ég veit ekki hvaaaað.... Ég veit eiginlega ekkert hvað ég á að segja.. það er ekki búinn að líða nógu langur tími frá því ég bloggaði seinast.. hehe verður að líða lengra á milli hjá mér svo ég geti bloggað eitthvað skemmtilegt... Ég er farin að klára að horfa á myndina! Og hey er að setja myndir inná myspacið mitt frá ýmsum atburðum! Loksins....
-SigurbjörgE.
»
18.10.2007 17:06:00 / sibba_e
»
23.09.2007 19:29:43 / sibba_e
»
07.09.2007 13:01:51 / sibba_e
»
22.08.2007 00:01:06 / sibba_e
Jæjaa ætla að byrja á að óska henni Ásdísi minni til hamingju með afmælið aftur. En hún varð 17 ára skvísan þann 14 ágúst og kjellan búin að ná bóklega bílprófinu og alles.. rosa góð. Þannig núna er ég bara að bíða eftir að hún tekur verklega svo við getum farið á rúntinn og svona Ég er samt líka ennþá að bíða eftir óvissuferðinni??? ha Ásdís? Eeen þá eru danskir dagar búnir ooog þeir voru rosa skemmtilegir... leiðinlegt fyrir ykkur sem misstuð af þeim eða ég skemmti mér allavega vel. Ég, Ingibjörg og Erla gistum í tjaldi í garðinum hjá frænda hennar Erlu, og það vildi svo skemmtilega til að hann á heima bara fyrir ofan tjaldsvæðið þannig það var nú ekki langt fyrir okkur að fara þangað. Svo var bara skemmt sér niðrí bæ og verið á tjaldsvæðinu og haft ægilega gaman.. rosalega fín helgi, ein af þeim skemmtilegustu af sumrinu að mínu mati Núna er ég komin til Heisa bró.. búin að koma með fyrir í herberginu og ligg uppí rúmi í stóra rúminu mínu sem er rosalega notalegt. Svo er það bara skóli kl 8:30 á morgun.. já skólinn er að byrja! trúi því varla, þetta sumar er búið að vera alltof fljótt að líða.. líka svo mikið að gerast á sumrin þannig það bara þýtur áfram. Fékk góða stundatöflu. Bara með tvær eyður ooog byrja á að fara í frönsku á morgun... víjj hlakkar rosa til að byrja að læra það tungumál Æjj ég nenni ekki meir núna... verður bara að vera stutt í þetta sinn því ég ætla að fara að sofa.. eða reyna það allalveg. Gúd næt;*
»
07.08.2007 20:47:35 / sibba_e
Hæhó, ég
held að það sé barasta kominn tími á eitt stykki
blogg.Er búin að vera á fullu að fylla út umsókn
til að fara sem skiptinemi og það er sko ekkert smá prógram,
ji minn eini. Fyrst þarf maður að skila inn frumumsókn og
þegar maður er búinn að því þá fær maður senda
framhaldsumsókn sem eru fleiri fleiri blöð. Þarft meðal
annars að fara í læknisskoðun, láta skólann þinn fylla út
blöð, skrifa helling um sjálfa þig á ensku og foreldrarnir
líka og senda fullt af myndum og váá bara svaka prógram sko!
En þetta er sem betur fer allt að verða klárt hjá mér, fór í
skólann í dag og þau ætla að fylla þetta út fyrir mig, þarf
að vera búin að skila þessu fyrir 13 ágúst. Vonandi að
maður fái síðan já, annars verð ég mjög svekkt En já mig
langar semsagt mjög mikið að fara út sem skiptinemi til
Frakklands, setti það í 1 sæti og Ítalíu í 2. Svo þar á eftir
koma 3 lönd, Þýskaland, Austurríki og Tékkland. Já maður þarf
að velja 5 lönd og ekkert mikið í boði ef maður fer í janúar
þannig ég valdi bara þessi. Langar samt mest til
Frakklands
Er að reyna að baslast við að setja myndir hérna
inná frá þarseinustu helgi en það er ekki alveg að virka núna
þannig ég verð bara að prófa seinna. Ég og Ingibjörg höfðum það
ægilega notalegt þá helgi og vorum bara einar heima hérna hjá mér,
mamma og pabbi fóru í einhvað ferðalag. Og við höfðum það sko alls
ekki slæmt á meðan Við sváfum, fórum í partý á föstudeginum,
skagann á laugardeginum, fórum í sund, grilluðum og reyndum að
redda okkur fari heim í nokkra klukkutíma á laugardeginum!! Enduðum
á því að rölta heim til Þóreyjar þegar kl var orðin hálf 7, eftir
að hafa hringt í örugglega alla! En hún Þórey var svo góð að leyfa
okkur að gista með sér í stóra rúminu sínu og við náðum að sofa í
nokkra tíma og fórum svo heim. Oog já þetta var bara hin fínasta
helgi. Um versló helgina var ég því miður að vinna
þannig að ég var rosalega stillt og mætti í vinnu á morgnana
og fór svo að sofa snemma á kvöldin... það var reyndar bara
allt í lagi á meðan allir voru einhversstaðar fullir og alveg
í ruglinu Næsta versló helgi verður þá bara tekin með
trompi í staðinn
Svo er stefnan tekin á að skella sér í kveðjupartý til hennar
Sunnsí sætu á laugardaginn, víst að maður fékk nú boðskort kellan
ætlar bara að yfirgefa klakann í ár og fara sem au pair til
Mancester, örugglega ekki leiðinlegt
það Og svo þarnæstu helgi ætla ég að skella mér á
Danska daga í stykkishólmi og vonandi verður það bara jafn gaman og
í fyrra
En jæja
ætlaði bara aðeins að láta í mér heyra, fara alveg að koma
myndir hérna inn hafið það gott.
-Sigurbjörg
»
18.07.2007 11:22:33 / sibba_e
Já vegna “fjölda” áskorana þá hef
ég ákveðið að blogga smá. Eheemm já þið heyrðuð það, fjööölda
áskorana Já´jaájá svo ég segi nú aðeins frá
helginni....
A föstudaginn var ég að vinna og svo um kvöldið
var smá afmælisboð hjá Ingibjörgu fyrir nokkrar stelpur. Við
borðuðum góðan mat eða svona óhollustu aðallega og síðan bara
spjallað. Síðan lá leiðin til Sunnsí og þar vorum við bara að
chilla eitthvað og svo vildu stelpurnar endilega fara á
mörkina og jújú við fórum þangað og þar var sko ekki margt um
manninn skal ég segja ykkur en samt alveg ágætisskemmtun,
vorum bara nokkur að spjalla útí horni. Og svo skutlaði Erla
okkur heim, Erla góða Erla
Síðan á laugardaginn mætti ég í vinnu og það var alveg rosa stuð.
Síðan lá leið mín niður á skaga með Erlu og Guðdísi.. tókum smá
rúnt og síðan fór ég til Heisa bró og þar var Sædís frænka og ég
var aðeins að passa hana og síðan fór ég aftur út og fór til
Ásdísar aðeins og var þar bara að spjalla Síðan aftur á rúntinn
og endaði á mörkinni með Ingibjörgu. Það voru nú aðeins fleiri það
kvöld og það var bara meget gaman. Síðan röltum ég, Ingibjörg,
Sigfús, Ágúst og Danni heim til fúsa og vorum bara eitthvað að
chilla og loks fórum við Ingibjörg heim til Heiðars að sofa. Oooog
viti menn ég var í fríi daginn eftir mér til mikillar hamingju
Þanniig að ég og Ingibjörg fórum á Hagamel þegar við vöknuðum og
létum renna í uppblásnu sundlaugina hennar og lágum þar eins og
skötur, mjög notalegt. En þessi dagur var nú líka smá fyndinn
því að það skeði smá óhapp hjá mér. Já ég var að
prófa krossaran hans Arnars frænda og jáá fyrst var alveg voða
gaman og ég geðveikt góð í 1 gír.. en svo ákvað ég nú að fara uppí
2 gír og það gekk nema svo missti ég stjórnina og prjónaði og
endaði út í tré hjá næsta nágranna... Hahhaha við viissum ekki
alveg hvort við ættum að hlægja eða hvað... fyrst vorum Ingibjörg
og Arnar alveg “Er allt í lagi blabalba” heheh og ég sagði bara já
og síðan skellihlógum við.. heheh braut reyndar
tréð held ég en kallinn sagði að það væri nú í
lagi Erum búin að hlægja miiikið af
þessu
Á mánudaginn fórum við
í tívolí. Ég, Ingibjörg, Ágúst og Þórður. Sigfús var búinn að
ákveða að koma með en neinei svo þegar við vorum á leiðinni að ná i
hann þá var hann bara kominn í ræktina þannig að hann var skilinn
eftir En við skemmtum okkur allavega vel, fórum í skemmtilegustu
tækin og síðan fórum við bara heim kl hálf 11 enda tívolíið lokað
þá.
En jæjaa núna er ég komin í 4 daga frí og það er ekkert nema niice.
Á morgun er familyan að fara í veiðiferð á Arnarvatsheiði fram á
laugardag.. eða ég, pabbi, Fannar, Heiðar, Guðbjörg, Elín og svo
eitthvað af systkinum mömmu fara þannig að þetta verður svona
family time einhversstaðar út í rassgati og ég held það eigi eftir
að verða gaman. Ég ætla að taka Arnar frænda með til að hafa
einhvern
félagsskap
Ooog núna held ég að ég sé búin með bloggkvótann í bili
enda orðið nokkuð langt..
Sjáumst
»
08.07.2007 22:39:12 / sibba_e
Jæja er ekki blogg í því..... jú ég
held það nú! Hef verið allt of löt við þetta undanfarið,
skammskamm Sigurbjörg
Allaveeega lífið gengur bara sinn vanagang... Írskir dagar voru
núna um helgina eins og allir ættu að vita hehe og ég var því miður
að vinna alla helgina þannig að ég kíkti bara á skagann á kvöldin
og hafði gaman með vinunum. Á föstudeginum fórum við Erla saman og
hittum Guðbjörgu og strákana Óla, Sigurjón, Kára, Guðmann og fleiri
og haha þeir voru sko hressir litly greyin nema kannski Guðmann
hann var bara að keyra Hittum nokkra kennara úr Heiðarskólanum
góða, rosa stuð alveg. Svo í gær var það auðvitað Lopapeysu ballið
sem var meget gaman eins og við mátti búast, þrátt fyrir
svolitla ölvun kannski en ég meina hvað er það á milli vina??
Hitti auðvitað fullt af fólki og svona gaman... Bubbi kallinn stóð
líka fyrir sínu. En ég, Þórey og Sunna skemmtum okkur allavega vel
á leiðinni á ballið.. heehh vorum soldið rugalaðar en þannig á það
auðvitað að vera ekki satt Bubba beautyquenn (Guðbjörg Ösp)
skutlaði mér og mamms svo heim kl 5 og ég var sofnuð um 6 eftir að
ég og mamma vorum búnar að taka nokkur hlátursköst hehheh en já svo
mætti maður alveg eiturferskur í vinnuna kl 10 eða já fersk og ekki
fersk! þessi dagur var ekki sá besti og alveg hræðilega lengi að
líða.. en ég get sjálfri mér um kennt Nennti engan veginn að taka
myndir á þessu en sé pínu eftir því núna þar sem að það er svo
gaman að eiga myndir frá svona hátíðum...
En að allt öðru ÚÚÚ verð að segja eitt.. bráðum verð ég sko
Supernanny, hehe jább hann Heisi bró og Guðbjörg eru að fara að
eignast lítið kríli í desember og mig hlakkar svooo tiiiil, þetta
barn á eftir að verða knúsað af mér 100 sinnum á dag minnsta
kosti er alltaf að tala við bumbuna sko svo að litla krílið þekki
nú alveg örugglega röddina í frænku sinni, ekki annað hægt.. hehe
segi svona
Vá hvað ég fæ eitthvað rosalega mikla útrás þegar ég blogga, er
alltaf að velta fyrir mér hvað það er sem fær mann til að blogga...
stundum er það svo ómerkilegt en kannski vantar manni bara athygli
eða bara einfaldlega þörf fyrir að fá smá útrás á lyklaborðinu og í
heilanum og svona og váá hvað er ég að bulla hehe rugl!
Ég ætla að slutta þessu núna áður en ég fer að segja meiri vitleysu
og fara að horfa á Friends og síðan lúlla þar sem að ég er ekki
búin að sofa næstum því nóg þessa helgi
Sjáumst dúllídúll;*
-Sigurbjörg
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|
Heimsóknir
Í dag: 11 Alls: 38933
|